Fjármálaeftirlitið heimilaði í morgun aftur viðskipti með alla skuldabréfaflokka Íbúðalánasjóðs sem hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Viðskiptin voru stöðvuð fyrir opnun markaða í gær til að vernda jafnræði fjárfesta.

Ástæðan var sú að klukkan hálftíu í gærmorgun voru tillögur verkefnisstjórnar um framtíð húsnæðismála kynntar í ríkisstjórn. Þær voru aftur á móti ekki kynntar almenningi fyrr en klukkan fjögur um daginn.