Sænski haframjólkurframleiðandinn Oatly er á leið á markað. Félagið kann að vera metið á allt að 10 milljarða dollara, jafnvirði 1.300 milljarða króna að því er FT greinir frá.

Í sumar var félagið metið á um 2 milljarða dollara, um 260 milljarða króna, í fjármögnunarumferð sem Blackrock leiddi en fjölmiðlakonan Oprah Winfrey og tónlistarmaðurinn Jay-Z tóku þátt í líkt og Viðskiptablaðið fjallaði um þá . Meðal annara þekktra hluthafa er leikkonan Natalie Portman.

Markmið skráningarinnar er sagt vera að styðja frekari vöxt félagsins en búist er við að einhverjir hluthafar muni losa hluti í félaginu.

Vörur Oatly eru seldar víða um heim, þar með talið hér á landi. Oatly velti um 200 milljónum dollara árið 2019 og tvöfaldaði þá veltuna á milli ára. Félagið hefur gefið út að stefnt hafi verið á annað eins árið 2020.

Eftirspurn eftir gervimjólk unnin úr plöntum hefur aukist til muna á síðustu árum. Í Bandaríkjunum er er talið að söluaukning slíkra vara hafi numið 28% á síðasta ári.