Orkuveita Reykjavíkur hyggst á næstu árum greiða skuldir fyrirtækisins niður um 80,3 milljarða króna samkvæmt fjárhagsáætlunum sem samþykktar hafa verið í stjórn fyrirtækisins. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og langtímaáætlun fyrir árin 2015 til og með 2019 er áhersla lögð á áframhaldandi aðhald í rekstrinum meðan staðinn er vörður um grunnþjónustu fyrirtækisins. Í tilkynningu frá OR segir að áætlunin sé í samræmi við Plan fyrirtækisins og eigenda, frá árinu 2011. Engin stakkaskipti verði í starfseminni eftir að tímabili þess lýkur, í árslok 2016.

Sparnaður í rekstri Orkuveitunnar hefur skilað góðum árangri undanfarin ár og telja stjórnendur fyrirtækisins að núverandi umfang henti viðfangsefnum þess. Orkuveitan rekur vatnsveitur, hitaveitur, rafmagnsveitur og fráveitur í um 20 sveitarfélögum auk þess að framleiða orku í fjórum virkjunum. Fyrirhugaðar fjárfestingar á næstu árum eru einkum í veitukerfum en líka í umhverfisverkefnum við virkjanirnar tvær á Hengilssvæðinu.

Gert er ráð fyrir að gjaldskrár Orkuveitunnar fylgi verðlagi. Á árunum 2005 til 2010 rýrnuðu gjaldskrár fyrir rafmagn og heitt vatn um u.þ.b. þriðjung. Aðrar forsendur fjárhagsáætlunar séu í samræmi við þjóðhagsspá. Ljóst sé að þróun ytri þátta, svo sem gengis, vaxta og álverðs, geti raskað þeim áformum sem í þeim birtast. Þung skuldabyrði í erlendum gjaldmiðlum geri fyrirtækið viðkvæmara fyrir sveiflum þessara þátta, jafnvel þótt brugðist sé við með áhættuvörnum.