Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins (SA) er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna.

Þetta kemur fram á vef SA en kosningin hófst í gærmorgun en Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi  SA þann 18. apríl 2008.

Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna.

Sjá nánar á vef SA.