Fyrsta útboðið á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (OR; Reykjavík Energy) í nýjum flokki, ORG180255, verður 13. febrúar næstkomandi. OR greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Skuldabréfaflokkurinn er til 36 ára, ber fasta verðtryggða vexti og verður tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland Sustainable Bond markaðnum. Flokkurinn er jafngreiðsluflokkur með greiðslum höfuðstóls og vaxta á sex mánaða fresti og lokagjalddaga 18. febrúar 2055.

Skipuleg vinna að umhverfismálum

Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið skipulega að umhverfismálum um langa hríð. Það var einna fyrst íslenskra fyrirtækja til að gefa út umhverfisskýrslu, árið 2000, og starfsemin hefur frá árinu 2005 notið óháðrar vottunar samkvæmt ISO 14001 umhverfisstaðlinum. OR hefur sett sér það markmið að smækka kolefnisspor fyrirtækisins um 60% fyrir árið 2030.

Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna þau fjölmörgu grænu verkefni sem eru á döfinni hjá OR og dótturfyrirtækjunum – Veitum, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur. Má þar nefna;

  • Orkuvinnslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum, svo sem raforkuvinnslu og stækkun hitaveitna
  • Vatnsvernd og eflingu fráveitna
  • Snjallvæðingu veitukerfa og
  • Metnaðarfull kolefnisbindingarverkefni

Í tengslum við útgáfuna hefur OR sett sér grænan ramma – Reykjavik Energy Green Bond Framework. Græni ramminn fylgir svokölluðum „green bond principles,“ viðmiðum útgefnum af ICMA, Alþjóðasamtökum  aðila á verðbréfamarkaði. Græni ramminn byggir á fjórum stoðum; (i) skilgreiningu grænna verkefnaflokka, (ii) valferli grænna verkefna, (iii) meðferð fjármuna og (iv) skýrslugjöf til fjárfesta.

Góðar einkunnir við alþjóðlega vottun

CICERO (Center for International Climate Research) hefur veitt óháð álit á rammanum og gefur honum hæstu einkunnir; „dark green“ fyrir jákvæð umhverfisáhrif verkefnanna og „excellent“ fyrir umgjörð skuldabréfanna hjá fyrirtækinu.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Hvað eru græn skuldabréf?

Græn skuldabréf eru skuldabréf sem gefin eru út til að fjármagna verkefni sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vinna þannig gegn hlýnun jarðar og þeirri vá sem henni fylgir. Einn helsti hvatinn að útgáfu þeirra er vinna fjölda opinberra- og einkaaðila gegn loftslagsbreytingum og vitundarvakning meðal fjárfesta hefur hert á þessari þróun. Allir þeir útgefendur skuldabréfa sem sem fjárfesta í umhverfisvænum verkefnum geta gefið út græn skuldabréf; ríki, sveitarfélög og fyrirtæki.

Útgáfa skuldabréfaflokksins er í samræmi við áður samþykkta útgáfuáætlun Orkuveitu Reykjavíkur á skuldabréfum.

Græn skuldabréf hafa verið að hasla sér völl hér á landi. Viðskiptablaðið hefur meðal annars greint frá velheppnaðari útgáfu Landsvirkjunnar á grænum skuldabréfum í Bandaríkjunum .  Þá stofnaði eignastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir sjóðinn IS Græn skuldabréf en sjóðurinn fjárfestir í skuldabréfum sem ætlað er að hafa jákvæð áhrif á umhverfi okkar og samfélag. Reykjavíkurborg stofnaði svo í lok síðasta árs grænan skuldabréfaflokk .