Niðurstaða reksturs Orkuveitu Reykjavíkur á fyrsta fjórðungi 2017 var svipuð og undanfarin ár. Hækkað mat á verðmæti raforkusölusamninga til langs tíma sem tengdir eru álverði skapaði fyrirtækinu hinsvegar mikinn bókfærðan hagnað, en hækkunin nam 5,3 milljörðum króna, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Þetta er fugl í skógi en ekki í hendi,“ segir Bjarni Bjarnason forstjóri OR um mikinn bókfærðan hagnað í árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2017.

Heildarafkoman var jákvæð um 6.039 milljónir króna, rekstrarhagnaður EBIT var 5.301, EBITDA hagnaður nam 7.685 milljónum, en rekstrartekjurnar voru 11.822 milljónir meðan rekstrarkostnaðurinn var 4.138 milljónir. Á sama tíma fyrir ári voru rekstrartekjurnar 11.336 milljónir og rekstrarkostnaðurinn 4.079 milljónir, en afkoman 2.535 milljónir.

Reiknaður tekjuskattur hækkaði mikið

Reiknaður tekjuskattur OR hækkar verulega milli ára og nemur 2,3 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins segir jafnframt í tilkynningunni. Um síðustu áramót lækkaði verð á hluta þjónustu OR samstæðunnar að því er segir í fréttatilkynningu. Innan hennar eru Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur, auk móðurfélagins.

Tekjur samstæðunnar fyrstu þrjá mánuði ársins 2017 jukust frá sama tímabili 2016 um 487 milljónir króna, þrátt fyrir lækkun á gjaldi fyrir rafmagnsdreifingu og kalt vatn um áramótin. Mestu munar um auknar tekjur Orku náttúrunnar. Rekstarkostnaður samstæðunnar jókst um 59 milljónir á sama tíma.

Segir rekstrarkostnað vaxa óverulega

„Lykilatriði í þessu uppgjöri er að rekstrarkostnaður vex óverulega. Með því eigum við betur með að halda verði fyrir þjónustuna niðri og greiða eigendum sanngjarnan arð. Sú mikla tekjufærsla sem gerð er vegna hækkunar á álverði fyrstu mánuði ársins og skilar miklum hagnaði á tímabilinu er fugl í skógi en ekki í hendi. Þessir peningar eru langt í frá komnir í kassann,“ er haft eftir Bjarna í tilkynningunni.

„Við vonumst auðvitað til að hækkun á áli sé varanleg og að raforkusala til stórnotenda skili auknum tekjum. Sú þróun er hinsvegar ekki í okkar höndum. Við hjá OR og dótturfélögunum einbeitum okkur að því mikilvæga hlutverki sem okkur hefur verið falið og viljum sinna af trúmennsku og hagsýni.“