Hugmyndir um hagræðingu á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur með skertu starfshlutfalli hafa verið ræddar í stjórn fyrirtækisins, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Segir að þær hafi einnig verið ræddar á tugum samráðsfunda sem hafa farið fram síðustu vikur.

Forstjóri kom óboðinn á fund

„Stjórnarmaður í OR tók upp á því í morgun að boða trúnaðarmenn hjá fyrirtækinu á sinn fund. Forstjóri OR kom óboðinn á þann fund ásamt innri endurskoðanda OR, enda fordæmalaust að einstakir stjórnarmenn boði til starfsmannafunda.

Á fundinum kom fram að þessar tilteknu hugmyndir hafa verið ræddar í stjórn OR. Þær voru gagnrýndar á fundinum í morgun.

Stjórnendur OR hafa kappkostað að vanda til þeirra hagræðingaraðgerða, sem fyrirtækið stendur frammi fyrir,“ segir í tilkynningu frá Orkuveitunni.