Í kjölfar kaupa Orkuveitu Reykjavíkur á Hitaveitu Hveragerðis varð það að samkomulagi að OR muni leggja ljósleiðara (háhraðanet) um Hveragerðisbæ samkvæmt nánara samkomulagi og í samráði við bæjaryfirvöld. Ljósleiðarinn verður eign og alfarið rekinn á ábyrgð OR. Íbúar Hveragerðis munu þá njóta sömu tækni í gagnaflutningum og Reykvíkingar. Lagning ljósleiðara til heimila verður unnin í samræmi við slíka uppbyggingu Orkuveitunnar í Reykjavík.

Orkuveita Reykjavíkur keypti Hitaveitu Hveragerðis fyrr í mánuðinum með öllum borholum, götuæðum og öðrum búnaði og verður hitaveitan hluti af starfsemi OR framvegis. Í haust verður opnuð sérstök þjónustuskrifstofa OR í Hveragerði.

Kaupverð er tvö hundruð og sextíu milljónir króna og er kaupverðið m.a. miðað við áætlanir um endurnýjun og uppbyggingu á hitaveitukerfum á þann hátt, sem gert hefur verið á síðustu árum. Við yfirtöku á rekstrinum mun OR færa gjaldskrá á veitusvæðinu til samræmis við gjaldskrá OR í Reykjavík.

Fyrir utan uppbyggingu veitukerfanna og endurnýjun þeirra, kemur fram í ákvæðum samningsins að Orkuveita Reykjavíkur muni beina verkefnum tengdum Heilsuborgarverkefninu að Hveragerði að svo miklu leyti sem það er talið henta og í samráði við stjórnendur Heilsuborgarverkefnisins og Hveragerðisbæjar.

Orkuveita Reykjavíkur hefur um langa tíð sinnt umhverfis umbótum og aðgerðum til bætts aðgengis ferðafólks á Hellisheiði og Hengilssvæðinu. Orkuveitan mun í framhaldi af undirritun samnings þessa stækka það starfssvæði sitt með áherslu á að tengja þessa starfsemi austur Hellisheiði og að Hveragerði.

Verkefni, sem geta fallið undir þetta eru t.d. lagfæring og merking göngu- og reiðleiða í samstarfi við aðra hagsmunaaðila, uppgræðsla og gerð upplýsingaskilta fyrir ferðamenn.

Þá mun Orkuveitan skv. nánara samráði við Hveragerðisbæ, aðstoða við nauðsynlegar endurbætur á Hverasvæðinu í Hveragerði.