Matsfyrirtækið Moody‘s gefur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) lánshæfiseinkunnina B1 með neikvæðum horfum og er það óbreytt frá fyrra mati.

Fram kemur í tilkynningu frá OR um málið að matið hafi ekki áhrif á rekstur eða skuldastöðu OR.

Fyrirtækið og eigendur OR kynntu í mars í fyrra aðgerðaráætlun fram til ársins 2016. Hún miðar að því að Orkuveitan þurfi ekki að leita erlendrar fjármögnunar fram að þeim tímai.