Þar sem Þór Sigfússon hefur tekið við nýju starfi sem forstjóri Sjóvá hefur hann sagt sig úr Yfirtökunefnd, segir í segir í tilkynningu frá nefndinni.

Í stað hans hafa stofnaðilar tilnefnt Árna Tómasson, endurskoðanda, sem eftirmann hans. Einnig er samkomulag um að Magnús Gunnarsson og Erna Bryndís Halldórsdóttir hafi sætaskipti, það er Magnús verður varamaður í nefndinni en Erna Bryndís aðalmaður.

Þá má geta þess að Yfirtökunefnd hefur verið að skoða tilboð Atorku Group hf. í Jarðboranir hf.