Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, mun taka sæti í stjórn Mosaic Fashions í stað Þórdísar J. Sigurðardóttur, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands í kjölfar aðalfundar félagsins.

Stjórninga mynda Stewart Binnie, John Derek Lovelock, Richard Glanville, Gunnar Sigurðsson og Þór Sigfússon.

Þórdís, sem er stjórnarformaður Dagsbrúnar, mun taka sæti í stjórn breska félagsins Wyndeham Group, ásamt Gunnari Smára Egilssyni og Viðari Þorkelssyni, fjármálastjóra Dagsbrúnar.

Dagbrún samþykkti að kaupa Wyndeham í mars fyrir 81 milljón punda, eða um 11 milljarða króna.