Á aðalfundi SA 18. apríl 2008 var Þór Sigfússon kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins.

Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Þór var rétt kjörinn formaður starfsárið 2008-2009 með 94% greiddra atkvæða.

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2008 til 2009.

Nýir koma inn í stjórnina Árni Gunnarsson Flugfélagi Íslands ehf., Halldór J. Kristjánsson Landsbanka Íslands hf., Ólafur Rögnvaldsson Hraðfrystihúsi Hellissands, Sigurður Viðarsson Tryggingamiðstöðinni hf.

Úr stjórninni ganga Bjarni Ármannsson Glitni bank hf., Björgólfur Jóhannsson Landssambandi ísl. útvegsmanna, Helgi Bjarnason Sjóvá og Jón Karl Ólafsson Icelandair.