Þór Sigurgeirsson bæjarfulltrúi og viðskiptastjóri hjá Verði tryggingum sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðiflokksins í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi þann 7. Nóvember næstkomandi. Þór hefur um árabil verið afar virkur félagsstarfi sem og  í bæjarlífinu á Seltjarnarnesi segir í tilkynningu.

Þór sem jafnframt er formaður umhverfisnefndar bæjarins er 42 ára innfæddur Seltirningur,  kvæntur Maríu Björk Óskarsdóttur viðskiptafræðingi og eiganda Nýttu Kraftinn og eiga þau þrjár dætur þær Söru Bryndísi 11 ára, Örnu Björk 9 ára, og Mörtu Sif 2 ára.