Rannsóknar- og þróunarverkefni í loftslags- og loftgæðamálum við Hellisheiðarvirkjun hafa hlotið alþjóðlega styrki að fjárhæð um þriggja milljarða króna. Þar af hafa um 250 milljónir runnið beint til vísindastarfs OR en vinna vísindafólksins hefur sparað fyrirtækinu um 13 milljarða króna.

Þetta kemur fram í upphafserindi Bjarna Bjarnasonar forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur á Vísindadegi OR, sem er í Hörpu í dag og hefst klukkan 9:00. Hér er tengill á beina útsendingu frá Vísindadeginum .

CarbFix verkefnið

CarbFix er heiti verkefnis sem hófst fyrir rúmum áratug við Hellisheiðarvirkjun. Það felst í að fanga koltvíoxíð úr jarðgufunni sem nýtt er í virkjuninni, blanda það vatni og binda sem steintegund djúpt í iðrum Hellisheiðar. Verkefnið á sér samsvörun í fjölda vísindaverkefna víða um heim sem ganga út á að binda gróðurhúsalofttegundina en hefur þá sérstöðu að aðferðin er ódýrari en aðrar og bindur koltvíoxíð skjótar og með miklu varanlegri hætti en algengast er.

OR hefur leitt verkefnið frá upphafi og verkefnisstjóri þess er dr. Edda Sif Pind Aradóttir, starfandi framkvæmdastjóri Þróunar OR. Að því hafa komið vísindamenn frá fjölda landa og vísindaráð þess hefur frá upphafi leitt dr. Sigurður Reynir Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands, sem á dögunum hlaut æðstu viðurkenningu samtaka bandarískra jarðefnafræðinga.

Ríkulega styrkt úr samkeppnissjóðum

Verkefnið hefur þótt svo brautryðjandi að aðstandendur þess hafa hlotið fjölda styrkja úr alþjóðlegum samkeppnissjóðum og þar hefur Evrópusambandið verið einna veitulast.

Í upphafserindi Bjarna Bjarnasonar, forstjóra OR, á Vísindadegi fyrirtækisins í dag kemur fram að samanlagðir styrkir til allra þátttakenda í verkefninu nema nú um 25 milljónum evra. Þar af hafa um tvær milljónir evra komið í hlut OR. Það svarar til um 250 milljóna króna.

Sama aðferð dugði á brennisteininn

Kolefnisbindingin í CarbFix verkefninu leiddi af sér aukaafurð þegar Orkuveita Reykjavíkur þurfti að mæta kröfum um minnkaðan útblástur brennisteinsvetnis frá jarðhitanýtingunni. Vísindafólkið þróaði þá samsvarandi aðferð, kölluð SulFix, fyrir brennisteinsvetni.

Á árinu 2017 voru um tveir þriðju hlutar alls brennisteinsvetnis í jarðgufunni sem í gegnum virkjunina fór bundinn sem grjót djúpt í jörðu með sama hætti og koltvíoxíðið. Þessa hafa sést skýr merki í loftgæðamælingum.

Milljarða sparnaður

Að binda jarðhitaloft sem grjót hefur sparað OR verulegar fjárhæðir. Kostnaðarmat sýnir að hefðbundnar aðferðir við hreinsun brennisteinsvetnisins hefðu kostað að núvirði um 14 milljarða króna.

SulFix-aðferðin kostar 1,2 milljarða. Mismunurinn, sparnaður OR af því að vísindafólk fyrirtækisins í samstarfi við aðra þróaði þessa byltingarkenndu aðferð, nemur því tæpum 13 milljörðum króna að núvirði.

Vísindadagur OR

Vísindadagur OR er haldinn 14. mars ár hvert. Sá dagur er haldinn í heiðri sem pí-dagurinn en dagsetningin er víða skrifuð 3.14, sem er hlutfallið milli ummáls hrings og þvermáls hans. Í ár fer Vísindadagur OR fram í Hörpu.

Dagskráin hefst klukkan níu og flutt verða erindi af margvíslegum toga um vísinda-, þróunar- og nýsköpunarstarf hjá OR og dótturfyrirtækjunum allt til um klukkan fjögur síðdegis.