Orkuveita Reykjavíkur og Lánasjóður sveitarfélaga hafa undirritað lánasamning að fjárhæð 900 milljónir króna. Lánið er til tíu ára, verðtryggt með 3,15% vöxtum, sem eru lægri vextir en á skuldabréfunum.

Lánið er tekið til að endurfjármagna skuldabréfaflokk, sem Reykjavíkurborg gaf út í tengslum við fjárfestingar í fráveitukerfi,  RVK 05. Orkuveita Reykjavíkur hefur greitt af þeim bréfum frá því fyrirtækið tók við rekstri fráveitu af Reykjavíkurborg árið 2006.