Raforkuvinnsla á Íslandi hófst fyrir rúmum 100 árum og var fyrsta rafstöðin vatnsaflsstöð sem Jóhannes Reykdal reisti við Hamarskotslæk í Hafnarfirði árið 1904. Í kjölfarið komu ýmis sveitarfélög sér upp rafstöðvum og á árunum 1921-1933 voru Elliðaárnar virkjaðar. Á fjórða áratugnum bættust við virkjun Ljósafoss í Sogi og Laxár í Þingeyjarsýslu við Brúar.

Á árunum eftir seinni heimsstyrjöld jókst raforkunotkun mikið, m.a. vegna aukinnar notkunar rafmagns til eldunar og fjölmargar heimarafstöðvar voru byggðar, að því er fram kemur um sögu raforkuvinnslu á vef Orkustofnunar.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð .