Bandaríski tæknirisinn Oracle hefur gert 9,3 milljarða dollara tilboð í NetSuite. Þetta kemur fram á fréttaveitu Bloomberg.

Oracle, sem selur tæknilausnir til fyrirtækja og stofnanna, hefur lengi vel verið að leita leiða til þess að auka úrval á skýjalausnum. Yfirtaka félagsins mun að mati stjórnenda Oracle bæta reksturinn og skapa ný tækifæri á markaðnum.

Tilboðið hljóðar upp á 109 dali á hlut. NetSuite var stofnað árið 1998 og markaðsvirði þess er um 7,37 milljarðar dollara. Með kaupunum tryggir Oracle sér um 30.000 nýja viðskiptavini.