Þórey Vilhjálmsdóttir hefur verið ráðin til Sjálfstæðisflokksins sem kosningastjóri fyrir borgarstjórnarkosningar 2010.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum en Þórey mun síðar taka við starfi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks af Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur sem fer í fæðingarorlof.

Þórey er með BS gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur síðastliðið ár starfað sem framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Auk þess hefur hún víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri, stjórnun, markaðs- og kynningarmálum. Hún er einn af stofnendum V-dagssamtakanna og situr í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Þórey situr einnig í leikskólaráði Reykjavíkurborgar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Hún er í sambúð með Ríkharði Daðasyni og eiga þau tvö börn.