Fyrsta uppskeran af erfðabreyttu byggi var tekin í Grænu smiðjunni í Grindavík í dag. Um er að ræða nýtt 2000 fermetra hátæknigróðurhúsi í eigu ORF Líftækni. Með hjálp erfðatækni sem þróuð hefur verið af ORF framleiðir byggið sérvirk og verðmæt prótein sem eru meðal annars notuð við læknisfræðilegar rannsóknir, lyfjaþróun og sem lyf, segir í fréttatilkynningu.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra skar fyrsta byggið og tók gróðurhúsið formlega í notkun við hátíðlega athöfn í dag, fimmtudaginn 8. maí 2008. Með frekari uppbyggingu í tengslum við ný verkefni og fyrirhugaða byggingu próteinhreinsiverksmiðju er áætlað að starfsemi ORF skapi fjölmörg störf í Grindavík en rúmlega 20 manns starfa nú hjá fyrirtækinu.

Græna smiðjan er einstök á heimsvísu og framleiðslan í henni er að mestu leyti sjálfvirk. Byggplönturnar eru ræktaðar í næringarlausn á sérhönnuðu færibandi. Hitastigi, birtu, og rakastigi er stjórnað nákvæmlega til að aðstæður fyrir ræktunina séu sem bestar. Mikla orku þarf til ræktunar byggs í gróðurhúsi og smiðjan notar rafmagn og heitt vatn frá orkuveri Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi.

ORF Líftækni hefur undanfarin ár unnið að þróun á eigin kerfi þar sem bygg er notað til að framleiða sérvirk prótein eins og finnast í mannslíkamanum. Þar á meðal eru svokallaðir vaxtarþættir sem eru mikið notaðir við margvíslegar læknisfræðilegar rannsóknir. Fyrirtækið setti fyrstu vörur sínar á markað í janúar síðastliðnum undir heitinu ISOkineTM. Þar með varð ORF fyrsta fyrirtækið í heiminum til að hefja sölu á slíkum próteinum sem framleidd eru með sameindaræktun í plöntum. Framleiðslan er mun hagkvæmari en hefðbundin framleiðsla í bakteríum eða spendýrafrumum og mikið öryggi felst í að framleiða slík prótein í plöntum sem ekki geta borið sýkingar í menn.

ORF Líftækni er þegar orðið stærsta fyrirtækið á sínu sviði í Evrópu. Mikil áhersla er nú lögð á markaðs- og sölumál og ORF hyggur á frekari landvinninga fyrir framleiðsluvörur sínar á næstunni, bæði fyrir læknisrannsóknir og lyfjaþróun og eins fyrir snyrtivöruiðnaðinn. Fyrirtækið kynnti vörur sínar nýlega á stórri sýningu snyrtivöruiðnaðarins í Evrópu og vöktu þær mikla athygli og áhuga. Einnig er nú unnið að því að fá vottun frá Evrópska lyfjaeftirlitinu til framleiðslu hráefna í lyfjagerð í Grænu smiðjunni.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra sagði þegar hann skar fyrsta byggið: “Hugmyndir ORF eru sprottnar upp úr opinberu rannsóknarumhverfi á Íslandi og með ódrepandi frumkvöðlabjartsýni hefur forsvarsmönnum fyrirtækisins tekist að yfirstíga alla erfiðleika og gera það að einstöku hátæknifyrirtæki í heiminum. Græna smiðjan í Grindavík skapar fyrirtækinu sterka ímynd þar sem framleiðslan byggir öll á grænni og endurnýjanlegri orku úr iðrum jarðar. Ég óska frumkvöðlunum og öllu starfsfólki ORF Líftækni hf. innilega til hamingju með Grænu smiðjuna og er þess fullviss að hún mun auka mjög á hróður Íslands á alþjóðavettvangi."

Björn Lárus Örvar, sameindaerfðafræðingur og framkvæmdastjóri ORF Líftækni sagði í ávarpi sínu: “Öflugt vísinda- og þróunarstarf okkar undanfarin ár er nú að skila sér og við sjáum mikil tækifæri til vaxtar, sérstaklega á sviði lyfjaþróunar. Samfara auknum og nýjum verkefnum hyggjum við á frekari uppbyggingu starfseminnar hér í Grindavík og erum að skoða ýmsar leiðir að því að efla forystu okkar á þessu sviði.”

Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavíkur sagði: ”Grindavíkurbær óskar ORF til hamingju með formlega opnun nýs hátæknigróðurhúss. Grindavík er kjörinn staður fyrir starfsemi af þessu tagi þar sem stutt er í alla orku og landkostir góðir og við vonum að starfsemin megi vaxa og dafna til framtíðar.”

ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs árið 2008.