Þorfinnur Ómarsson hefur verið ráðinn til starfa sem fjölmiðla- og upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytisins. Hann heyrir beint undir ráðherra.

Þorfinnur hefur nýlega látið af störfum sem einn af umsjónarmönnum Íslands í dag á Stöð 2.

Þorfinnur tjáði Vb.is að ráðningu sína hefði borið brátt að og enn væri ekki frágengið hvort um fastráðningu eða tímabundna ráðningu væri að ræða.