Þorgerður K. Gunnarsdóttir hlaut 80,6% atkvæða í varaformannsstól Sjálfstæðisflokksins. Þetta var tilkynnt rétt í þessu.

Alls fékk hún 1.304 atkvæði af  1.618 atkvæðum sem greidd voru.

Þorgerður Katrín þakkaði stuðninginn. Hún sagðist myndu styðja dyggilega við bak hins nýja formanns.  „Bjarni við verðum að klára þetta dæmi," sagði hún og beindi orðum sínum til Bjarna Benediktssonar, nýkjörins formanns flokksins.

Hún sagði fyrir öllu að berjast fyrir íslensku þjóðina.