Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur opnað þróunarsetur í Belgrad í Serbíu en markmiðið með starfseminni er að efla samkeppnishæfni og þróa nýjar hugbúnaðarlausnir fyrir viðskiptavini.

„Með opnun á þróunarsetri í Serbíu viljum við auka enn frekar getu okkur til lausnaþróunar og nýsköpunar og efla þjónustu við viðskiptavini okkar. Það gerum við m.a. með því að efla sérþekkingu í hugbúnaðarþróun og auka getu til vaxtar í þessum hluta starfsemi okkar,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Origo.

Rótin að starfseminni í Belgrad má rekja til kaupa Origo á hlut í fyrirtækinu Unimaze, sem sérhæfir sig í rafrænum reikningum, í lok síðasta árs. Unimaze hefur, af því er segir í fréttatilkynningu, góðu reynslu af þekkingarsamfélaginu í Belgrad og innviðum þess. Starfsmenn Unimaze og Origo í Belgrad eru nú 10 talsins, allir á sömu skrifstofu sem opnuð var fyrr á þessu ári.

„Með starfstöðinni í Belgrad getum við betur svarað kalli viðskiptavina sem í auknum mæli gera kröfu um meiri hraða og sveigjanleika en á sem hagkvæmastan hátt,“ segir Finnur.

„Það er ljóst að fjölmörg fyrirtæki leita nú starfskrafta erlendis, ýmist í verktöku eða með ráðningum og við hjá Origo höfum undanfarin ár haft ágæta reynslu af slíku fyrirkomulagi, m.a. útvistað hugbúnaðarþróun til samstarfsaðila í Póllandi og víðar. Við gerum ráð fyrir að slíkt samstarf verði áfram til staðar.“