Tap Origo á fjórða ársfjórðungi 2020 nam 53,3 milljónum króna, en á sama tíma fyrir ári hagnaðist félagið um 90,2 milljónir króna. Á sama tíma jukust tekjur félagsins um 13,1%, úr rúmlega 4,3 milljörðum króna í 4,9 milljarða, meðan rekstrargjöldin jukust um 13,3%, úr tæplega 4,2 milljörðum í ríflega 4,7 milljarða króna.

Rekstrarhagnaður félagsins jókst á milli ára um 9,3%, úr 151 milljóni í 165 milljónir króna, meðan EBITDA félagsins jókst um ríflega fjórðung, eða 26%, úr 302 milljónum í 381 milljón krónur. Framlegðin nam 1.231 milljón króna, eða 25,1% á ársfjórðungnum sem er lækkun frá sama tíma fyrir ári þegar hún nam 1.325 milljónum króna eða 26,3%.

Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé voru neikvæðir um 255 milljónir króna á ársfjórðungnum en neikvæðir um 351 milljón króna á sama tíma fyrir ári. Sá liður var jákvæður um 156 milljónir króna fyrir árið í heild en neikvæður um 222 milljónir árið 2019.

Eigið fé félagsins jókst á árinu um 2,9%, úr 6,8 milljörðum í rétt rúmlega 7 milljarða, meðan skuldirnar jukust um 5,6%, úr tæplega 5,1 milljörðum króna í tæplega 5,4 milljarða. Þar með jukust eignir félagsins um 4%, úr tæplega 11,9 milljörðum króna í tæplega 12,4 milljarða og eiginfjárhlutfallið lækkaði úr 57,4% í 56,7%.

Heildarhagnaður ársins 2020 nam 408 milljónum króna, sem er lækkun um nærri 10,5% frá árinu 2019. Tekjurnar námu 17,1 milljarði króna, sem er 14,9% tekjuvöxtur frá árinu 2019, þegar þær námu ríflega 14,8 milljörðum króna. Framlegðin fór úr 3,8 milljörðum króna, eða 25,9% í 4,3 milljarða króna eða 25,1%. EBITDA félagsins fór úr 1 milljarði í ríflega 1,2 milljarða milli ára.

Jón Björnsson forstjóri Origo hf:

„Árangur Origo árið 2020 er góður og að baki er ár þar sem frábært samstillt átak starfsfólks skilar góðum rekstri í viðskiptaumhverfi sem ekkert okkar hefur upplifað áður. Tekjur félagins jukust um 15% og EBITDA* félagsins nam 1.245 mkr, sem er aukning frá fyrra ári. Mikill afkomubati er á notendalausnasviði félagsins og vel hefur tekist til að halda góðri afkomu á hugbúnaðarsviðum þess. Afkoma af rekstrarþjónustu er viðunandi miðað við breytingar í umhverfinu en aukin stærðarhagkvæmni er nauðsynleg til að bæta afkomu af slíkri þjónustu. Félagið setti heilsu og öryggi starfsfólks í forgang og vann vel í því að skapa aðstæður svo félagið mætti halda áfram góðum rekstri. Vel útfærð fjarvinnustefna og skilvirk samskipti urðu til þess að góður árangur náðist við stór innleiðingaverkefni og félagið gerði hluti sem líklega hefðu aldrei verið prófaðir við eðlilegar aðstæður.

Hluti af hugbúnaðarsviðum félagsins stóðu frammi fyrir miklum áskorunum í upphafi árs þegar tekjur frá ferðaiðnaði drógust verulega saman, en Origo hafði unnið að nokkrum nýsköpunarverkefnum í stafrænum ferðalausnum. Félagið tók stefnumarkandi ákvörðun að halda áfram að fjárfesta í ferðavörum og vera tilbúið þegar ferðaiðnaðurinn tekur við sér að nýju en starfsmenn færðust einnig yfir í verkefni þar sem meiri eftirspurn var eins og í heilbrigðislausnum og verkefnum tengdum stafrænum umbreytingum. Þannig tókst félaginu að snúa þeim rekstri við á seinni helming ársins.

Á árinu er Origo einna stoltast af verkefni tengdu landamæraskimun, sýnatöku og bólusetningum en þar var félagið í lykilhlutverki og sýndi hversu vel má treysta því að vinna flókin og umfangsmikil verkefni hratt og vel. Fyrirtækið átti einnig einstakt ár þegar kemur að innleiðingu fjárhagskerfa, bankalausna og mannauðs- og launalausna hérlendis á sama tíma og Applicon, sænskt dótturfélag Origo, átti metár í tekjum.

Sífellt fleiri viðskiptavinir sjá hag sínum betur borgið með útvistun í stað þess að reka sína eigin innviði þegar kemur að upplýsingatækni og sér Origo vaxandi eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Miklar umbreytingar eru að eiga sér stað í rekstrarþjónustu tæknifyrirtækja í kjölfar aukinna áherslu á skýjaþjónustu. Origo leggur áherslu á að fylgja eftir þessum breytingum. Markmið félagsins er ekki að reka gagnaver, heldur að vera sterkur samstarfsaðili sem býður landfræðilegan aðskilnað á kerfum og gögnum. Origo leggur áherslu á að geta tekið við þjónustu og rekið hana fyrir viðskiptavini, hvort sem hún er hýst á Íslandi eða hjá erlendum skýjum. Samhliða er félagið í stöðugri umbótavinnu við að auka sjálfvirkni og hagkvæmni í rekstarþjónustu en mikil þörf er að ná stærðarhagkvæmni svo hægt sé að ná meira en viðunandi arðsemi af slíkri þjónustu.

Skilyrði fyrir sölu á notendabúnaði hafa verið hagfelld s.l. mánuði og skilar það, ásamt breyttum áherslum í rekstri, mjög viðunandi arðsemi á því sviði. Töluverð áskorun að tryggja búnað til viðskiptavina vegna vöruskorts á heimsvísu en þekking og sterk sambönd við samstarfsaðila gerðu gæfumun. Söluaukning notendabúnaðar er rúm 20%, annað árið í röð. Flutningur sölu frá hefðbundinni verslun yfir á netið hefur skilað 152% veltuaukningu netverslana Origo samhliða því að fjárfesting félagsins í Tölvutek á s.l. ári, og mikil þekking á hljóð- og myndlausnum skilar Origo góðum árangri.

Tempo, sem er hlutdeildarfélag Origo, hefur átt ágætt ár. Það er að einhverju leyti litað af Covid 19 en einnig af breytingum er stuðla að því að geta sett félagið í næsta vaxtarfasa. Viðskiptavinir félagsins nema nú rúmlega 20.000 fyrirtæki og undirliggjandi er góð veltaukning í áskriftartekjum og skýr áhersla á áframhaldandi tilfærslu úr miðlægum umhverfum í skýjalausn.

Við erum sátt við niðurstöðu ársins 2020. Aðstæður í kjölfar Covid 19 voru þess eðlis að fyrirtækið þurfti að aðlaga sig hratt að nýjum veruleika. Það tókst með samstilltu átaki starfsfólks. Nýjar vinnuaðstæður og breytingar á umhverfi viðskiptavina voru þess eðlis að enduhugsa þurfti allt vinnulag sem og að margar einingar tókust á við miklar breytingar á tekjusamsetningu. Finna þurfti ný tækifæri og samhliða sinna aukinni eftirspurn á fjölmörgum sviðum. Mest af þessu þurfti að eiga sér stað í fjarvinnu.

Origo hefur tekið fyrstu skref í að skerpa samfélagslegar áherslur sínar en félagið hefur mikinn hug á því að ná enn frekari árangri þegar kemur að jafnrétti kynjanna, eflingu nýsköpunnar, ábyrgri neyslu, umhverfismálum, heilsu og vellíðan starfsfólks.

Origo er spennt fyrir verkefnum 2021. Vissulega eru óvissumerki í efnahagslífinu en verkefnastaða félagins í hugbúnaði er góð og umhverfið almennt hagfellt fyrir fyrirtæki í upplýsingatækni, hvort sem eru í þróun hugbúnaðar eða sölu notendabúnaðar."