Fulltrúar Orku náttúrunnar (ON) og Silicor Materials skrifuðu í dag undir samning um sölu á 40 megavatta raforku til fyrirhugaðrar verksmiðju þeirra síðarnefndu á Grundartanga, en þar verður framleiddur kísill til raforkuframleiðslu úr sólarorku.

„Með samningnum hækkar það verð sem ON fær fyrir orkuna verulega og það er ekki tengt verði á afurðum kaupandans,“ segir í fréttatilkynningu.

Það voru þau Páll Erland, framkvæmdastjóri ON, og Terry Jester, stjórnarformaður Silicor Materials, sem undirrituðu samninginn við athöfn í Elliðaárstöðinni í dag. Samningurinn er fyrsti stórnotendasamningur um raforkusölu sem ON gerir eftir að að fyrirtækið tók við virkjanarekstri og raforkusölu OR í ársbyrjun 2014. ON á og rekur jarðgufuvirkjanirnar á Nesjavöllum og Hellisheiði auk vatnsaflsvirkjunar í Andakílsá.

Hærra verð og minni áhætta

Á næstu misserum renna út samningar um orkusölu til Landsvirkjunar sem OR gerði á árunum 1997 og 2000. Með samningi ON við Silicor tryggir fyrirtækið sölu á raforkunni sem bundin var í þeim samningum. ON mun því ekki ráðast í nýja virkjun til að afla orkunnar.

ON mun fá greitt í Bandaríkjadölum og söluverðið hækkar verulega með nýja samningnum. Er hann til 15 ára með möguleika á framlengingu, en afhending orku hefst á árinu 2018.

„Í samningunum sem eru að renna út er innifalinn í verðinu flutningur raforkunnar, sem er á hendi Landsnets. Í samningi ON og Silicor er flutningur ekki innifalinn og þar með dregur úr áhættu ON af því að þróun flutningskostnaðar verði fyrirtækinu óhagstæð,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Silicor Materials áformar að framleiða allt að 19 þúsund tonn af sólarkísil á ári til að byrja með. Fyrirhuguð fjárfesting fyrirtækisins nemur um 120 milljörðum króna og gert er ráð fyrir að um 450 manns vinni við verksmiðjuna.

Silicor Materials er fyrirtæki stofnað árið 2006 með höfuðstöðvar í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Forstjóri fyrirtækisins og stjórnarformaður er Theresa Jester verkfræðingur. Hún hefur nær fjögurra áratuga reynslu af þróun og nýtingu sólarorku.