Franska orkufyrirtækið Qair hefur eignast 50% hlut í Íslenska vetnisfélaginu (ÍV) við útgáfu nýs hlutafjár. Qair á nú ÍV til helminga á móti Orkunni, dótturfélagi Skeljar fjárfestingarfélags.

Íslenska vetnisfélagið er dótturfyrirtæki Orkunnar og rekur í dag tvær vetnisstöðvar, á Vesturlandsvegi og í Fitjum, Reykjanesbæ. Fyrsta vetnisstöðin á Íslandi, sem var jafnframt sú fyrsta í heiminum til að selja vetni á neytendamarkaði, var tekin í notkun árið 2003 og eru um 30 vetnisbílar á suðvestur horninu í dag.

Á næstu árum verða fjórar nýjar vetnisstöðvar teknar í notkun, þær fyrstu í Reykjavík og á Akureyri, næsta stöð þar á eftir er fyrirhuguð á Egilsstöðum og að lokum á Freysnesi.

„Óhætt er því að segja að orkuskiptin snúi ekki einungis að rafmagni en árið 2026 verður hægt að keyra kolefnishlutlaust hringveginn á vetnisbíl.“

Í tilkynningunni segir að drægni vetnisbíla sé umtalsvert meiri en rafmagnsbíla ásamt því sem engin rafhlaða er sem þyngir bílana. Vetnisbílar skili frá sér vatni og eru því kolefnishlutlausir. Mikill áhugi sé fyrir þessum valmöguleika, sérstaklega þegar kemur að þungaflutningum.

„Þessi metnaðarfulla uppbygging mun geta valdið straumhvörfum í orkuskiptum í innanlandssamgöngum. Vetnisinnviðir eru forsenda þess að neytendur og fyrirtæki telji raunhæft að fjárfesta í vetnisbílum,” segir Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri ÍV.

„Fyrirtæki eru stöðugt að leita leiða til að draga úr kolefnisspori og með mest 380 km milli vetnisstöðva verður hægt að búa til forsendur fyrir því að loka hringveginum og færa vöruflutninga yfir á kolefnishlutlausa orkugjafa. ÍV er gríðarlega spennt fyrir orkuskiptunum sem framundan eru og að taka þátt í uppbyggingunni á grænum valkostum fyrir neytendur.“

Íslenska vetnisfélagið hefur jafnframt tryggt sér landssvæði á Grundartanga þar sem félagið mun byggja vetnisframleiðslu í þeim tilgangi að þjónusta vetnisinnviðum.