Norska fyrirtækið Orkla ASA hefur komist að samkomulagi um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus hf., en fyrir átti félagið 20% hlut í sælgætisframleiðandanum. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Nóa Síríus hefur verið einn af leiðandi sælgætisframleiðandi hér á landi um langt skeið. Sögu félagsins sem má rekja allt aftur til ársins 1920. Í dag starfa um 120 manns hjá félaginu sem framleiðir fjöldann allan af sælgætistegundum af mörgum stærðum og gerðum. Má þar meðal annars nefna súkkulaði af ýmsu tagi undir heitinu Síríus, Nóa Konfekt, Nóa Kropp, Nóa Páskaegg og Konsum. Velta félagsins árið 2020 var um 3,6 milljarðar.

„Orkla er leiðandi fyrirtæki á neytendavörumarkaði á Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og völdum mörkuðum í Mið-Evrópu og á Indlandi. Orkla er skráð á hlutabréfamarkað í Noregi og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins í Osló. Velta félagsins árið 2020 var um 47 milljarður norskra króna og eru starfsmenn félagsins yfir 21 þúsund talsins,“ segir í fréttatilkynningu.

Orkla hefur verið 20% hluthafi í Nóa Síríus undanfarin tvö ár og fyrirliggjandi samkomulag felst því í kaupum á hlutum annarra hluthafa. Í fréttatilkynningu segir að aðilar hafi komið sér saman um að gefa ekki upp kaupverð viðskiptanna.

Sjá einnig: Norskt fyrirtæki kaupir 20% í Nóa Síríus

Fjármálaráðgjöf Deloitte hafði umsjón með ferlinu og var ráðgjafi seljenda. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Í tengslum við þessi viðskipti, hefur Finnur Geirsson forstjóri Nóa Síríus, óskað eftir að láta af störfum eftir 31 ár sem forstjóri félagsins. Finnur mun þó halda áfram sem forstjóri félagsins til 1. ágúst næstkomandi, þegar Lasse Ruud-Hansen mun taka við stöðunni en í tilkynnunni segir að hann hafi víðtæka reynslu innan FMCG iðnaðarins og síðast verið SVP Business Development hjá Orkla Consumer & Financial Investments.

„Nói Síríus hefur sérstöðu á Íslandi sem fellur vel að eignasafni Orkla af leiðandi vörumerkjum. Við sjáum möguleika á að skapa verðmæti með því að halda áfram að byggja á sterkri stöðu Nóa Síríus á Íslandi, en jafnframt auka vöruúrvalið. Súkkulaði, snakk og sælgæti eru kjarnaflokkar fyrir Orkla. Ísland er vaxtarmarkaður og við ætlum að vera hluti af þeim vexti," er haft eftir Jaan Ivar Semlitsh, forstjóra og stjórnarformanni Orkla.

„Með þessum kaupum er Orkla Confectionery & Snacks komið með starfsemi á öllum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum sem gefur tækifæri til frekari vaxtar," segir Ingvill T Berg, forstjóri Orkla Confectionery & Snacks í tilkynningunni.

„Á þessum tímamótum er ég sérstaklega  stoltur af því að hafa, ásamt framúrskarandi samstarfsfólki, byggt upp þetta frábæra fyrirtæki og vörumerki sem Nói Síríus er. Þegar eitt stærsta fyrirtæki Norðurlandanna á þessu sviði sýnir fyrirtækinu jafn mikinn áhuga og raun ber vitni, fyrst sem minnihluthafi og í kjölfarið með núverandi samkomulagi, er það skýr vitnisburður um einstakan árangur. Við erum jafnframt ánægð með kaupandann, sem er öflugur aðili með víðtæka þekkingu á starfsemi af þessu tagi, og teljum við að Nói Síríus verði í góðum höndum með Orkla. Fyrir þeim vakir að hlúa að okkar ágætu vörumerkjum sem hafa unnið sér hylli á löngum ferli fyrirtækisins," segir Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Síríus hf., sem líkt og fyrr segir mun láta af störfum sem forstjóri félagsins eftir ríflega þrjá áratugi í starfi.