Íslenska ríkið hefur fallist á að breyta íslensku regluverki og tryggja að raforkufyrirtæki sem nýta náttúruauðlindir í almannaeigu til orkuframleiðslu greiði ávallt markaðsverð fyrir slík afnot. Stjórnvöld koma einnig til með að fara yfir gildandi samninga með orkufyrirtækjum til að  tryggja að til framtíðar verði einnig greitt markaðsverð á grundvelli þeirra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ESA, Eftirlitsstofnun EFTA .

„Aðgerðir íslenskra stjórnvalda byggjast á tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem í apríl í fyrra fór fram á gagngerða endurskoðun á fyrirkomulagi þessara mála. Breytt fyrirkomulag kemur í veg fyrir ríkisaðstoð til orkufyrirtækja og mun það hafa áhrif frá 1.janúar 2017. ESA hefur fyrir vikið ákveðið að loka rannsókn sinni á málinu. ESA mun engu að síður fylgjast með framvindu mála af hálfu íslenskra stjórnvalda,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Helgu Jónsdóttur, stjórnarmanni hjá ESA, að breytingarnar eru til að tryggja eðlilegt endurgjald fyrir nýtingu náttúruauðlinda í eigu almennings og þar með sanngjarna samkeppni á íslenskum raforkumarkaði.

ESA fór fram á það í apríl í fyrra að íslensk stjórnvöld tryggðu endurgjald fyrtir réttinn til að nýta náttúruauðlindir í almannaeigu til raforkuframleiðslu yrði byggt á markaðsforsendur. ESA lagði til ákveðnar ráðstafanir og aðferðafræði fyrir stjórnvöld til að tryggja það að þetta næði fram að ganga. Í kjölfarið tilkynntu íslensk stjórnvöld ESA að þau samþykktu tillögur stofnunarinnar og myndu grípa til viðeigandi ráðstafanna.

„Þeim ber því lagaleg skylda til að tryggja að fyrir nýtingu náttúruauðlinda til raforkuframleiðslu verði héðan í frá greitt á markaðsforsendum og að eldri samningum verði breytt til samræmis við það.

Íslensk stjórnvöld hafa skipað starfshóp til að yfirfara gildandi löggjöf og leggja til þær breytingar sem nauðsynlegur eru. Þá ber starfshópnum að móta skýra aðferðafræði um hvernig markaðsverð náttúruauðlinda verður ákvarðað. Starfshópurinn mun auk þess endurskoða núgildandi samninga og tryggja þar með að orkufyrirtæki greiði markaðsverð það sem eftir lifir af gildistíma samninganna. Íslensk stjórnvöld skuldbinda sig einnig til að upplýsa ESA um gang mála,“ segir að lokum í tilkynningunni.