Orkustofnun hefur sent til verkefnastjórnar drög að skilgreiningu á 50 af þeim 88 virkjanakostum sem væntanlega verða lagðir fyrir stjórnina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

„Gögnin eru enn í formi skýrsludraga, þar sem endanlegt snið á skýrslunni, skýrslunúmer og númer á köflum liggja ekki fyrir," segir í tilkynningu frá Orkustofnun.  „Einnig hefur Orkustofnun ekki lokið kostnaðarflokkagreiningu fyrir þá virkjanakosti sem stofnunin leggur fram né hefur gefist tími til að rýna kostnaðarflokkagreiningu frá orkufyrirtækjunum. Öll aðalatriði varðandi tilhögun virkjunarkostanna liggja þó fyrir og ættu tilgreindar forsendur þess að um drög er að ræða ekki að hamla vinnu verkefnastjórnar við þá kosti sem hér eru lagðir fram."

Gögnin sem send voru til verkefnastjórnar er hægt að finna á vefsíðu Orkustofnunar.