Orkuveita Húsavíkur ehf., sem er í eigu sveitarfélagsins Norðurþings, hefur selt raforkuhluta fyrirtækisins til RARIK ohf. og Orkusölunnar ehf.  Með kaupunum eignast RARIK rafdreifikerfi Orkuveitunnar og Orkusalan tekur við sölustarfsemi fyrirtækisins.  Orkustöðin - virkjun Orkuveitunnar og önnur dreifikerfi verða áfram í eigu Orkuveitu Húsavíkur.  Jafnframt var skrifað undir samning milli Orkuveitunnar og Orkusölunnar um kaup á framleiðslu frá virkjuninni. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki stjórna fyrirtækjanna, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu frá félögunum þremur. Undirritun samnings þess efnis fór fram í húsakynnum Orkuveitu Húsavíkur.

Með kaupunum yfirtaka RARIK og Orkusalan skuldbindingar Orkuveitu Húsavíkur er snúa að raforkuhluta hennar.  Viðskiptavinir Orkuveitu Húsavíkur verða frá og með 1. janúar 2010 viðskiptavinir RARIK og Orkusölunnar eins og aðrir íbúar sveitarfélagsins Norðurþings.  Á næstu vikum munu RARIK og Orkusalan kynna nánar starfsemi sína fyrir nýjum viðskiptavinum á Húsavík. Ekkert kemur fram um verð í tilkynningunni.