Matsfyrirtækið Reitun hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur um einn flokk, úr i.BBB1 í i.A3. Horfur hjá fyrirtækinu eru áfram taldar stöðugar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá OR.

Í tilkynningu frá Reitun kemur fram að helstu ástæður betri einkunnar séu sterkur rekstur, lækkandi skuldir, batnandi lausafjárstaða, minnkandi markaðsáhætta og traustir bakhjarlar fyrirtækisins. Þá er talað um að vel hafi gengið að ná markmiðum Plansins, en það er aðgerðaáætlun í rekstri fyrirtækisins sem gildir til ársloka 2016. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að lánshæfiseinkunn gæti hækkað meira ef fjárhagsstaða fyrirtækisins batnar enn frekar, skuldir lækka og áhætta minnkar, auk þess sem hærra lánshæfismat Reykjavíkurborgar myndi hækka heildareinkunn Orkuveitunnar.

Aðalfundur Orkuveitunnar vegna ársins 2013 var haldinn í gær. Á fundinum lýsti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri yfir áframhaldandi stuðningi við Planið. Þá var kjöri nýrrar stjórnar OR lýst á fundinum. Fjórir stjórnarmenn af sex sitja áfram í stjórn. Það eru þau Haraldur Flosi Tryggvason, Brynhildur Davíðsdóttir, Gylfi Magnússon og Kjartan Magnússon, en nýir fulltrúar eru Áslaug Friðriksdóttir og Valdís Eyjólfsdóttir.

Í samræmi við Planið var ákveðið að greiða ekki út arð vegna ársins 2013.