Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum í dag samninga við Grindavíkurkaupstað og Hafnarfjarðabæ um kaup á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja hf. að því er kemur fram í tilkynningu. Samkvæmt samningunum munu bæði sveitarfélögin nýta forkaupsrétt sinn á 15% hlut ríkisins og selja Orkuveitunni þá hluti. Jafnframt mun Grindavíkurkaupstaður selja Orkuveitunni 8,00% af 8,51% hlut sínum í HS.

Með samningunum skuldbindur Orkuveitan sig einnig til að kaupa allt að allan eignarhlut Hafnafjarðarbæjar í HS, sem nú er 15,42%. Öll viðskiptin eru á genginu 7.

Við samþykkt samninganna á fundi í hádeginu í dag stóðu allir stjórnarmenn OR að eftirfarandi bókun, segir í tikynningu:

Orkuveita Reykjavíkur rekur nú veitustarfsemi í 20 sveitarfélögum og frá stofnun félagsins hafa um 30 veitur í eigu sveitarfélaga sameinast Orkuveitunni. Frumkvæði að sameiningu veitnanna hefur komið frá sveitarstjórnum sem talið hafa að þekking og reynsla Orkuveitunnar á veitustarfsemi leiði til hagkvæmni í rekstri, rekstraröryggis og ódýrrar þjónustu.

Kaup Orkuveitu Reykjavíkur á hlutafé Grindavíkurkaupstaðar og Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja eiga sér stað að frumkvæði umræddra sveitarstjórna sem telja veitustarfsemi á Suðurnesjum betur komna á vegum Orkuveitunnar en annarra sem gert hafa tilboð í hlutafé félagsins.

Orkuveita Reykjavíkur hefur átt farsælt samstarf við Hitaveitu Suðurnesja hf. um árabil og saman hafa fyrirtækin samið um orkusölu til stóriðju.

Þá selur Orkuveitan heitt vatn í Hafnarfirði en Hitaveita Suðurnesja rafmagn og saman standa fyrirtækin að útboðum á þessu veitusvæði.

Kaupin á hlutfé sveitarfélaganna eru í samræmi við hlutverk og tilgang Orkuveitunnar segir í tilkynningunni.