Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur lokið sölu skuldabréfa í útboði að fjárhæð 5 milljarðar króna. Bréfin voru seld til innlendra fagfjárfesta. Fyrirtækið vinnur áfram að fjármögnun langtímaverkefna innan lands og utan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR.

Úr tilkynningu:

„Þetta er til marks um að sá uppskurður á rekstrinum, sem gripið var til í sumar, er að skila sér í aukinni tiltrú innlendra fjárfesta á fyrirtækinu," segir Helgi Þór Ingason forstjóri OR. Aðgerðirnar sem Helgi vísar til eru gjaldskrárbreytingar, harkalegur niðurskurður rekstrarútgjalda og eignasala, sem ákveðnar voru af stjórn OR 27. ágúst sl., og sú ákvörðun eigendafundar 17. september sl., að falla frá arðgreiðslum.

„Í aðdraganda útboðsins voru áhrif þessara aðgerða til lengri og skemmri tíma kynnt fyrir aðilum á fjármálamarkaði og jákvæð viðbrögð þeirra eru staðfest með góðum árangri í útboðinu," segir Helgi Þór.

Með aðgerðunum var aukinn áhersla lögð á kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. veitureksturinn á suður- og vesturhluta landsins. Verulega var dregið úr umfangi annarra verkefna, þau lögð af eða falin öðrum. Helgi Þór segir að aðgerðirnar hafi tekist prýðilega að því leyti að rekstrargjöld hafi sparast án þess að það hafi bitnað á grunnþjónustunni. Þess hafi ekki orðið vart, í það minnsta ekki enn sem komið er.

„Lykilatriði í þessum góða árangri eru skörp sameiginleg sýn stjórnar fyrirtækisins og eigenda á forgang grunnþjónustunnar og almenn þátttaka starfsfólks OR við að finna tækifæri til hagræðingar í rekstrinum," segir Helgi Þór.

Skuldabréfaútboðið var tilkynnt 25. nóvember sl. Það var í umsjá Landsbankans (NBI hf).

OR hefur birt í Kauphöll fjárhagsáætlun 2011 og áætlun um fjárfestingar og rekstur 2012-2016. Sjá hér . Unnið er að fjármögnun áætlunarinnar í samráði við eigendur fyrirtækisins.“