Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur heimilað forstjóra að ganga til samninga við meðeigendur OR í Hrafnabjargavirkjun hf. með það að markmiði að þeir eignist hlut Orkuveitunnar og að hún gangi þar með alfarið út úr félaginu. Endanlegt samkomulag þar um verði lagt fyrir stjórn OR til samþykktar.

Tillaga þessa efnis var samþykkt á stjórnarfundi OR á föstudag, en greint er frá þessu á vef Morgunblaðsins.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gerir er ósáttur við fyrirhuguð vinnubrögð við sölunar, en haft er eftir honum á mbl.is að eðlilegra væri að hámarka söluverð í gagnsæju söluferli í stað þess að ganga beint til samninga við meðeigendur Orkuveitunnar í umræddu félagi.

Í bókun Kjartans við tillöguna bendir hann á að rafmagnsöflun í þágu almennings sé grundvallaratriði í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. Um helmingur af rafmagnssölu OR á almennan markað kemur nú frá Landsvirkjun, samkvæmt sérstökum samningum, hinn þýðingarmesti er svokallaður tólf ára samningur, sem rennur út í árslok 2016. „Verði sá samningur endurnýjaður, má búast við verulegri verðhækkun á raforkunni samkvæmt yfirlýstri stefnu Landsvirkjunar. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að Orkuveitan leiti nýrra leiða til orkuöflunar í því skyni að tryggja almenningi á Stór-Reykjavíkursvæðinu hagstætt orkuverð til framtíðar. Í slíkri vinnu kemur sterklega til álita að Orkuveitan auki orkuvinnslu sína og dragi úr rafmagnskaupum frá Landsvirkjun,“ segir í bókun Kjartans.