Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við BioKraft ehf. um kaup á rafmagni frá tveimur vindmyllum sem fyrirhugað er að reisa í Þykkvabænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Samningurinn felur í sér að Orkuveitan fær aðgang að upplýsingum um uppbyggingu og rekstur mylnanna, sem nýst geta fyrirtækinu við frekari þróun raforkuvinnslu úr vindorku.

Vindmyllurnar tvær eru danskar af gerðinni Vestas og 600 kílóvött hvor. Þær verða reistar í sumar og gangsetning þeirra áformuð á haustdögum.Orkuveitan hyggst selja raforkuna á almennum markaði. Landsvirkjun kaupir um helming þeirra orku sem fer á almennan markað.