Talsverða tíðinda gæti verið að vænta frá íslenskri ferðaþjónustu í vikunni. Búist er við fjöldauppsögnum hjá mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum sem sjá ekki fram á komu neinna ferðamanna næstu mánuði, jafnvel út þetta ár.
Sjá einnig: 25% leiðin ekki nóg
Innan ferðaþjónustunnar er enn haldið í þá von að stjórnvöld tilkynni framlengingu og breytingu á hlutabótaúrræðinu fyrir mánaðamót þannig að það nái einnig til starfsmanna á uppsagnarfresti. 1. maí er á föstudaginn. Ella blasi gjaldþrot við fjölda fyrirtækja. Mörg fyrirtækjanna telja sig ekki eiga efni á að greiða þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Fjöldauppsagnir hjá Icelandair
Þá er staða Icelandair einnig óviss. Von er á fjöldauppsögnum hjá fyrirtækinu í vikunni og jafnvel verði 90% starfsmanna félagsins sagt upp. Flugsamgöngur liggja að mestu niðri í heiminum og alls óvíst er hvenær þær hefjast á ný. Félagið stefnir á að halda lágmarksstarfsemi þar til horfur á flugmarkaði batna á ný. Icelandair vinnur nú að hlutafjáraukningu með lífeyrissjóðunum. Þær viðræður hafa hins vegar hangið á því að endursamið yrði við helstu starfsstéttir félagsins. Flugmenn Icelandair hafa mótmælt því að launakjör þeirra séu hærri en gengur og gerist annars staðar og Flugfreyjufélagið hefur gefið út að þeirra félagsmenn eigi ekki að taka á sig kjaraskerðingu til framtíðar.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, telur ekki ólíklegt að nálægt 90% starfsfólks félagsins missi vinnuna samkvæmt frétt Morgunblaðsins .
Ríkið að borðinu
Á starfsmannafundi á föstudaginn sagði Bogi Nils Bogason , forstjóri fyrirtækisins, að það hefði nægt lausafé út maí. Í viðtali á Sprengisandi um helgina sagði Bogi að þau áform sem Icelandair væru að teikna upp miðuðust við að ríkið myndi lána félaginu fé gegn því að gengið yrði frá hlutafjáraukningu hjá Icelandair.
Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði við Morgunblaðið að það kynni að vera skynsamlegt að ríkið fjármagni uppsagnarfrest starfsmanna Icelandair og hugsanlega annarra félaga í ferðaþjónustunni. Þá sagði Óli Björn við RÚV um helgina að skoða mætti hvort ríkið ætti að lána Icelandair fé ef hlutafjáraukningin gengi í gegn.