Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 303,9 stig í september sl. og hækkaði um 0,4% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands

Verð á íbúðarhúsnæði er þannig á svipuðu róli og það var í upphafi þessa árs eftir að hafa lækkað nokkuð í lok síðasta árs.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað umtalsvert síðan í janúar 2008 þó vissulega hafi hún tekið sveig upp á við frá þeim tíma, t.d. í september í fyrra og nú fyrr í sumar. Þannig hefur íbúðaverð lækkað um 15% á föstu verðlagi síðan í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Á fyrstu mánuðum þessa árs, þ.e. fram að maí, hafði hins vegar verið lítil breyting á íbúðaverði eins og sjá má á myndinni. Sem fyrr segir er íbúðaverð sambærilegt því sem það var á fyrstu mánuðum þessa árs og hefur hækkað um 0,2% frá því í janúar.

Íbúðaverð hækkaði hins vegar töluvert í júní sl. eða um 1,9% á milli mánaða en lækkaði aftur um  1,3% í júlí sem var mesta lækkun á milli mánaða frá því í desember sl.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 0,9%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hins vegar hækkað um 0,1% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 3,2%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.