Hlutabréf hækkuðu á flestum stöðum í Asíu í dag en það voru japönsk framleiðslufyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

MSCI Kyrrahafsvísitalan hækkaði um 0,4% eftir að hafa lækkað um 3% síðustu fjóra daga.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 1,1%, í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 0,5% eftir að hafa lækkað um tæp 6% í síðustu viku og í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 0,1%.

Í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan hins vegar um 1,1% eftir að birtar voru opinberar tölur fyrir helgi sem sýna að hagvöxtur í Hong Kong hefur ekki verið minni í fimm ár.

Þá lækkaði Straits vísitalan í Singapúr um 0,7%.