Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um lítil 0,2% í dag og endaði í 1,810 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,79% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Símans, eða um 0,28% í 506 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 3,57 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,85% í 290 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel nemur þá 236,5 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 1% í 300 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 34,6 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,27% í 47 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 46,28 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmur 1,3 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 991 milljón króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 1,2 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 1 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 0,4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,6 milljarða króna viðskiptum.