Ormsson og Samsungsetrið hafa ákveðið að afnema vörugjöld og lækka verð í samstarfi við birgja sína. Frá og með morgundeginum munu þær vörur sem bera vörugjöld lækka um 17% og 20% í öllum verslunum.

„Við fögnum fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þar sem lagt er til að afnema vörugjöld af raftækjum frá og með áramótum á sama tíma og lagt er til að lækka virðisaukaskatt,“ segir Einar Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Ormsson, í tilkynningu frá félaginu.