Örn Tryggvi Johnsen hefur tekið við sem framkvæmdastjóri INNX innréttinga í stað Martens Lövdahls sem tekur sæti sem stjórnarformaður og þjónustustjóri fyrirtækisins.

Í tilkynningu frá INNX innréttingum segir að ráðning Arnar sé vegna aukinnar verkefnastöðu Innx sem flytur m.a. inn innréttingar og húsgögn fyrir bæði fyrirtæki og heimili frá mörgum þekktum framleiðendum. Örn mun stýra sókn og vexti fyrirtækisins á næstu misserum.

Örn Tryggvi er vélaverkfræðingur frá HÍ og með MBA gráðu frá HR.