Samskip hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga um meint samkeppnislagabrot félagsins, þar sem félagið er sakað um að hafa viðhaft ólöglegt samráð við Eimskip.

Samskip segja að það sé með öllu óásættanlegt að stjórnvöld, þ.e. Samkeppniseftirlitið eða sérstakur saksóknari, afhendi fjölmiðlum upplýsingar þar sem bornar eru á aðila alvarlegar sakir, sem hlutaðeigandi einstaklingar og fyriræki hafi ekki verið upplýst um og hafi enga möguleika á að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér með neinum hætti.

Yfirlýsingin í heild:

„Vegna frétta síðustu daga um ætlað samráð á flutningamarkaði vilja Samskip koma eftirfarandi á framfæri:

Félagið starfar af heilindum á markaði þar sem ríkir virk samkeppni. Það er skoðun okkar að skýr samkeppnislög og skilvirkt eftirlit séu nauðsynleg til að tryggja heilbrigt atvinnulíf.

Starfsemi Samskipa hefur ávallt grundvallast á samkeppni á öllum mörkuðum og félagið hefur verið leiðandi í að skapa virka samkeppni. Samskip hafa verið óhrædd við að benda eftirlitsaðilum á þegar félagið telur að keppinautar á markaði fari ekki að lögum. Ábendingar okkar til Samkeppniseftirlitsins hafa m.a. leitt til sektargreiðslna eins af samkeppnisaðilum okkar.

Eftirlitsaðilar gegna ábyrgðarmiklu hlutverki og heimildir þeirra til rannsókna eru afar víðtækar. Því er það sjálfsögð og eðlileg krafa að trúnaður ríki um gögn sem aflað er með jafn inngripsmikilli aðgerð og húsleit, með dómsúrskurði, á meðan mál eru til rannsóknar. Sá trúnaður er ekki til staðar og gögnum hefur verið komið til fjölmiðla um mál sem ekki er búið að ákveða hvort tekið verður til rannsóknar, hvað þá að ákærur hafi verið gefnar út.

Það er með öllu óásættanlegt að stjórnvöld (Samkeppniseftirlitið eða Sérstakur saksóknari) afhendi fjölmiðlum upplýsingar þar sem bornar eru á aðila alvarlegar sakir, sem hlutaðeigandi einstaklingar og fyrirtæki hafa ekki verið upplýstir um og hafa enga möguleika á að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér með neinum hætti.

Það er vægast sagt undarlegt að vera leiksoppur í því sem virðist vera barátta ríkisstofnana fyrir tilvist sinni og/eða auknum fjárveitingum og gersamlega óásættanlegt að orðspori, mannorði og sjálfsögðum mannréttindum sé ýtt til hliðar fyrir slíka hagsmuni.

Hjá Samskipum starfa yfir 500 manns. Starfsfólkið og fjölskyldur þeirra þurfa að sitja undir órökstuddum dylgjum um mál sem enn er til skoðunar. Í gær sendi Samkeppniseftirlitið frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að eftirlitið sé „ekki reiðubúið að staðfesta þá umfjöllun sem fram kom í Kastljósi í gærkvöldi. Þá skal sérstaklega tekið fram að rannsókn málsins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um niðurstöður hennar.“ Rétt er því að varast að fella dóm í málinu en bíða eftir því að niðurstaða liggi fyrir. Samskip hafa ekkert að fela og treysta því að niðurstaða skoðunar Samkeppniseftirlitsins og Sérstaks saksóknara sýni það.

Við vitum að ábyrgð okkar er mikil og við erum meðvituð um þær skyldur sem við berum gagnvart viðskiptavinum okkar og þá um leið almenningi í landinu. Starfsfólk Samskipa hefur unnið ötullega og eftir bestu samvisku að því að stuðla að virkri samkeppni og aukinni hagsæld á Íslandi með því að bjóða viðskiptavinum sínum hagkvæmar lausnir í flutningum og flutningatengdri þjónustu atvinnulífinu í landinu og samfélaginu öllu til heilla.“