Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Þórólf Halldórsson, sýslumann á Patreksfirði, sem sýslumann í Keflavík frá og með 15. júlí 2008.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Guðgeir Eyjólfsson, sem skipaður hefur verið sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008, hefur jafnframt verið settur til að gegna sýslumannsembættinu í Keflavík til 15. júlí þegar Þórólfur tekur við.

Átta umsóknir bárust um embættið. Auk Þórólfs sóttu eftirtaldir um:

  • Árni Haukur Björnsson, fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík
  • Ásgeir Eiríksson, fulltrúi og staðgengill sýslumannsins í Keflavík
  • Brynjar Kvaran, skrifstofustjóri og staðgengill sýslumannsins í Kópavogi
  • Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
  • Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á fjármálasviði Reykjavíkurborgar
  • Úlfar Lúðvíksson, skrifstofustjóri og staðgengill sýslumannsins í Reykjavík
  • Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík