Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, hefur verið ráðinn sem forstjóri fjarskiptafélagsins Skipta. Orri hefur á undanförnum rúmum þremur árum gegnt starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, en mun láta af störfum á næstu vikum af fyrrgreindri ástæðu.

Sigríður Hrólfsdóttir, formaður stjórnar Skipta, segir mikinn feng að því að hafa fengið Orra til Skipta: „Orri hefur viðamikla reynslu af fjarskiptamarkaðnum sem mun nýtast vel í þeim verkefnum sem eru framundan hjá fyrirtækinu. Með endurfjármögnun félagsins, sem lauk í sumar, er ljóst að framundan eru spennandi tímar hjá Skiptum og dótturfélögum þess,“ segir Sigríður í tilkynningu frá Skiptum.

„Það er alltaf spennandi að taka við nýjum verkefnum, en það er líka mikil eftirsjá af þeim sérlega áhugaverðu og mikilvægu viðfangsefnum sem ég hef fengið tækifæri til að spreyta mig á hjá Samtökum iðnaðarins. Sú fjölbreytta flóra fyrirtækja sem samtökin skipa, hafa barist hetjulega við erfiðar aðstæður á síðustu árum og munu veita innblástur á nýjum stað,“ segir Orri í tilkynningu sem Samtök iðnaðarins sendu frá sér.

Í tilkynningunni þakkar Orri starfsfólki og stjórn SI fyrir samstarfið.