Síminn og Háskólinn í Reykjavík hafa gert samstarfssamning sem gefur nemendum HR tækifæri til að þróa nýjustu þjónustu- og tækni á sviðum sjónvarps, upplýsingatækni og fjarskiptaþjónustu í samstarfi við Símann. Viðfangsefni þessa samstarfs eru fjölmörg en snerta meðal annars gervigreind, snjalltækni, snjöll heimili, nýjar leiðir í viðskiptum, afþreyingu og fjölmargt fleira að því er segir í fréttatilkynningu.

Samningurinn er til fimm ára og miðar enn fremur að því að kynna notkun upplýsingatækni í þróun lausna fyrir fjarskiptaþjónustu og skyldum rekstri fyrir nemendum háskólans og auka áhuga þeirra á störfum sem tengjast fjarskiptum og upplýsingatækni.

Styrkja allt að sex nemendur

Síminn mun styrkja meistaraverkefni allt að sex nemenda á ári sem tengjast starfsemi Símans. Verkefnin verða unnin hjá Símanum og HR og munu nemendur hafa aðgang að sérfræðingum Símans og tæknilegum innviðum fyrirtækisins við verkefnin.

Verkefnin verða valin af sameiginlegum faghópi úr tillögum frá nemendum, kennurum HR og starfsfólki Símans. Samstarfið nær einnig til starfsnáms, fræðslu og viðburða sem miða að því að efla þekkingu og áhuga á sviðum fjarskipta, afþreyingar og upplýsingatækni.

Hagvöxtur mun byggja á hugviti

„Hagvöxtur næstu ára og áratuga mun í stórauknum mæli byggja á hugviti og þar skipa upplýsingatækni og fjarskipti stóran sess sem sjálfstæður iðnaður og sem stoð við aðra starfsemi,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR.

„Það er því gríðarlega mikilvægt að efla menntun á þessu sviði og við erum mjög ánægð með þennan samstarfssamning sem veitir nemendum okkar tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum með Símanum.“

Skortur á tæknimenntuðu fólki

Orri Hauksson, forstjóri Símans segir að skortur hafi verið á tæknimenntuðu fólki hér á landi og vilji fyrirtækið gera sitt til að bæta úr því. „Við hjá Símanum horfum til þess að hröð þróun og tæknibreytingar hafa stöðugt áhrif á vöruframboð okkar og framtíð, hvort sem litið er til innviða, upplýsingatækni eða afþreyingar,“ segir Orri.

„Við erum stolt af því að sameina kraftana með Háskólanum í Reykjavík og vonum að frjó hugsun háskólanemenda blandist reynslumikilli þekkingu innan Símans með góðum árangri fyrir samfélagið.“