Á þriðjudaginn opnaði CCP fyrir fyrir almennan aðgang að skotleiknum DUST 514 á leikjaneti Playstation 3, en leikurinn var einnig formlega tengdur við flaggskip fyrirtækisins, fjölspilaraleikinn EVE Online. Blaðamaður Viðskiptablaðsins prófaði leikinn í síðustu viku og ræddi við Kjartan Pierre Emilsson sem hefur yfirumsjón með tengingu leikjanna.

Af þessu tilefni gaf CCP út nýtt myndband þar sem Dust 514 er kynntur.