Engar breytingar verða á stjórn Atorku Group en framboðsfrestur rann út í gær. Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn: Aðalmenn: Þorsteinn Vilhelmsson, Hrafn Magnússon,Örn Andrésson, Ólafur Njáll Sigurðsson og Karl Axelsson. Varamenn: Magnús Gústafsson og Stefán Bjarnason.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn þess skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Er því sjálfkjörið til stjórnar Atorku Group hf.