Í tilkynningu frá Þorsteini M. Jónssyni, stjórnarformanns Vífilfells kemur fram að rangt sé að Coca-Cola hafi haft í hótunum við Nýja Kaupþing eins og haldið var fram í fréttum og Fréttaauka Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.

Þá segir Þorsteinn einnig að ekki standi til að afskrifa skuldir sem tengjast Vífilfelli, rekstur félagsins sé í góðu horfi þó hrun íslenska efnahagslífsins hafi sett sitt mark á félagið og eigendur þess.

Tilkynningin frá Þorsteini er hér birt óbreytt í fullri lengd:

„Það er rangt að til standi að afskrifa skuldir sem tengjast Vífilfelli eða eignarhaldi á því.  Síðastliðnar vikur hafa átt sér stað uppbyggilegar viðræður við Nýja Kaupþing sem miða að fullum efndum allra skulda við bankann sem tengjast Vífilfelli og eignarhaldi á því.

Rekstur Vífilfells er í góðu horfi sem fyrr, en hrun íslensks efnahagslífs hefur að sjálfsögðu sett sitt mark á félagið og eigenda þess.

Það er ennfremur alrangt að fulltrúar Coca-Cola fyrirtækisins hafi haft í hótunum við Nýja Kaupþing eins og haldið er fram af ríkissjónvarpinu. Fulltrúar Coca-Cola hafa komið að viðræðum við Nýja Kaupþing og lagt gott eitt til.

Leiðarljós allra aðila, eigenda Vífilfells, fulltrúa Coca-Cola, og Nýja Kaupþings, er að tryggja áframhaldandi farsælan rekstur Vífilfells og þar með störf á þriðja hundrað starfsmanna fyrirtækisins.

Það er harmað að mál skuli sett fram með þeim hætti sem gert var af fréttastofu RÚV í gær, sérstaklega í ljósi þess að ofangreindar staðreyndir höfðu verið skýrðar út fyrir fréttamanni RÚV.

Virðingarfyllst,

Þorsteinn M. Jónsson

Stjórnarformaður“