Þorsteinn Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri yfir nýju sviði rekstrarstjórnunar (e. Operation Management) hjá FL Group. Þorsteinn Örn hefur á síðustu misserum gengt stöðu forstjóra FL Travel Group en hverfur nú aftur til starfa hjá FL Group. Hinu nýja sviði er ætlað það hlutverk að sinna rekstrarstjórnun og eftir atvikum fylgja eftir umbreytingum í félögum sem FL Group fjárfestir í, þar sem starfað verður náið með stjórnendum félaganna.

Jafnframt hefur verið ákveðið að Icelease, sem áður var sérstakt svið innan FL Group, verði gert að rekstrarfélagi í eigu FL Group. Halldór Vilhjálmsson verður áfram framkvæmdastjóri þessarar rekstrareiningar.