Íbúðafjárfesting dróst saman um 17% árið 2010, en árið 2011 er reiknað með 17% vexti, í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Spátími er til ársins 2016 og er gert ráð fyrir talsverðum vexti út spátímann.

„Átaksverkefni  ríkisins Allir vinna, sem felur í sér fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað árin 2011 og 2012, auk skattaívilnunar vegna vinnu sem framkvæmd er á byggingarstað árið 2011, er hvatning til íbúðafjárfestingar. Ríkisstjórnin hefur gefið í skyn í tengslum við gerð kjarasamninga að þetta átak verði framlengt,“ segir í spánni.

Öruggur vöxtur í veltu

Þá hefur velta á fasteignamarkaði vaxið nokkuð stöðugt þó að enn sé hún langt frá því sem mest varð árið 2007, en veltan nær varla því stigi á næstu árum, segir Hagstofan. „

Hlutur makaskiptasamninga í sölusamningum heldur áfram að lækka sem bendir til skilvirkari markaðar. Verð hefur styrkst eitthvað það sem af er ári, en raunverð hefur enn ekki hækkað. Ekki er gert ráð fyrir að íbúðaverð hækki að ráði umfram verðlag framan af spátímanum, en gert er ráð fyrir lítilsháttar raunhækkun í lok hans. Landsmönnum verður þá væntanlega aftur farið að fjölga sem ætla má að auki eftirspurn eftir fasteignum. Haldi fasteignamarkaðurinn áfram að styrkjast gæti þessi spá reynst of íhaldssöm.“