Örvar Snær Óskarsson hefur gengið til liðs við Júpiter rekstrarfélag hf. sem sérfræðingur.

Örvar hefur starfað hjá Landsbankanum frá árinu 2011 en fyrir það starfaði hann hjá Fjármálaeftirlitinu.

Hann er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í fjármálastærðfræði frá Queen Mary University í London.